Velkominn á síðuna okkar.
Front-list er síða sem heldur utanum listmuni sem við hönnum og sköpum. Allir okkar listmunir eru handunnir frá grunni og unnir af mikill ástúð. Hver og einn hlutur er því einstakur fyrir sig.
Þar sem við vitum að við höfum öll mismunandi stíl og smekk þá bjóðum við einnig uppá að sérpanta ákveðna muni. Með þeim hætti komum við á móts við hvern og einn.
En vertu enn og aftur velkominn á síðuna og njóttu þess að vafra um hana.
Gjörðu svo vel.
ATH. erum einnig á facebook undir nafninu okkar Front-list
Front ehf er lítið fjölskyldufyrirtæki sem við höfum skipt í tvo hluta, front-list
og front-inn. Ef þið hafið áhuga á að skoða front-inn sem heldur utanum innflutning á ýmsum vörum getið þið smellt á linkinn Front ehf.
 
Dagskráin fram að jólum 2011
Hér fyrir neðan er listi yfir þá staði sem við erum búnar
að bóka okkur á fram að jólum:
4.nóv Mjóddin kl.11-17:30
19.nóv Opið hús í galleríinu okkar frá 16-18.
Allir velkomnir, við verðum með heitt á könnunni og í jólastuði.
26.-27.nóv Jólaþorpið Hafnarfirði kl.13-18
(fyrsta helgin í aðventu)
3.-4.des Jólaþorpið Hafnarfirði kl.13-18
(önnur helgin í aðventu)
9.-10.des Jólabærinn Ingólfstorgi kl.14-18
(föstud. og laugard. þriðja helgin í aðventu)
11.des-6.jan Velkomin að líta við í galleríið okkar

Allt á fullu fyrir veturinn
Nú erum við á fullu að undirbúa vetrartörnina.Englar flögra um allt og við málum hús og hönnum nýja hluti. Svo það er nóg framundan og alltaf eitthvað nýtt að sjá hjá okkur. Kíkið endilega við í galleríinu okkar og sjáið allt það nýjasta.
Hlökkum til að sjá ykkur: Karen Ósk og Valdís Ósk
Í túninu heima, bæarhátíð Mosfellsbæar 27-28. ágúrat og Árbæarsafnið 28. ágúst 2011
Það verður fullt að gera hjá okkur um helgina. Við verðum með í bæarhátíð Mosfellsbæar: Í túninu heima og verðum við staðsettar í Íþróttahúsinu að Varmá.Þar verða fullt af básum og skemtidagskrá í gangi alla heldina. Við verðum með okkar víðfrægu hús og allt það nýjasta hjá okkur.Sýningarsvæðið veruðr opið eins og hér segir
Laugardag 13-17 og sunnudag 13-16
En á sunnudageinum ættlum við að skipta okkur í tvent og vera einnig með í markaðsstemningunni á Árbæarsafninu.Árbæarsafns-markaðurinn er eingöngu á sunnudeginum milli kl 13 og 16. Þar verðum við með bóndabæina okkar og kanski eitthvað pínu fleira.
Við hlökkum til að sjá sem flesta.
Nánari upplýsingar um báða markaði má finna hér:
Í túninu heima: http://www.mos.is/Menning/Vidburdir/Ituninuheima/Ituninuheima2011/
Árbæarsafn: http://www.minjasafnreykjavikur.is/
Kátt í Kjós16.júlí 2011
Undanfarin ár höfum við tekið þátt í þessari hátíð og það er alltaf jafn gaman, ef ekki bara skemmtilegra með hverju árinu.Þar myndast alltaf mikil markaðstemning jafnt inni sem úti. Í ár verður skólahreitsi á staðnum, kept í fuglahræðu-gerð og margt fleira. Við verðum staðsettar í Félagsgarði,félasheimilinu þeirra þar sem markaðurinn er staðsettur. Verðum með fullt af nýjum vörum,hlökkum til að sjá ykkur

Blóm í Bæ 2011
Við verðum í Hveragerði um helgina (24-26 júní). Þar verður sannkölluð blómahátíð og mikið um að vera. Í íþróttahúsinu verður stór blómasýning ásamt okkur og fleirum. Við verðum með fullt af nýjum vörum og að sjálfsögðu leggjum við áherslu á garðinn, sumarbústaðina og blómin. Gerið ykkur endilega ferð og kíkið á okkur og allt blómahafið. Hér er linkur inná dagskránna ef þið viljið kynna ykkur hana www.blomibae.is
Vorum í Mjóddinni 15.apríl
Þar vorum við með allt það nýjasta, sýnishorn af fermingarskrauti, fermingargjafir, páskaunga og margt fleira.
Margir létu sjá sig og þökkum við öllum fyrir góðar viðtökur skemmtilegan dag.
Fermingarnar 2011
Jæja þá eru fermingarnar framundan. Við erum með mikið af úrval af fermingargjöfum auk þess sem við erum með fallega muni sem eru tilvaldir sem fermingarskraut.Hér fyrir neðan er smá dæmi um það sem hægt er að nýta sér.
------------------------------------------Fermingarskraut:
Fermingarstytta: (úr steini) hægt að biðja um ákv. fatalit, hárlit o.s.f. Persónuleg, einstök og eiguleg handgerð stytta. (Hægt er að skoða hugmyndrir af fermingarstyttum undir steinar undir vöruflipanum hér til vinstir.) Verð aðeins 2000-2700kr.
Fermingarengill: (úr steini) í lit eftir smekk. Tilvalið á kransakökuna. Persónulegur, einstakur og eigulegur handgerður engill. Verð aðeins 2200-2700kr.
Blóma-steinn: Skrautsteinn með vasa fyrir lifandi afskorið blóm, þessir steinar eru tilvaldir sem borðskraut.Fermingarbarnið getur valið þann lit og skaut sem það vil. Auk þess sem steinarnir eru persónulegir og tilvaldir í herbergið eftir fermingu til minningar um góðan dag. Verð aðeins1800kr.
Myndasteinn: Skrautsteinn sem hægt er að festa í ljósmynd, ritningarvers, borðnúmer o.s.f.. Gaman er að hafa þessa steina t.d. tvo á hverju borði með myndum af fermingarbarniu.Fermingarbarnið getur valið þann lit og skaut sem það vil. Auk þess sem steinarnir eru persónulegir og tilvaldir í herbergið eftir fermingu til minningar um góðan dag. Verð aðeins1700kr.
Skrautsteinar: 20 litlir skrautsteinar í þeim lit sem fermingarbarnið óskar (hægt að velja um að hafa þá alla eins eða hafa tvo liti). Þessir steinar eru t.d. tilvaldir til að skreyta borðin í veislunni. Verð aðeins 800kr.
------------------------------------------ Fermingargjafir:
Ullarpeysu-engill: Engill í ullarpeysu( hægt að sérpannta í ákv. litaþema með góðum fyrirvar). Verð frá 2200kr. fer eftir stærð og vinnu
Þema-engill: Engill sem er klæddur í því þema sem kaupandinn velur (verður að pannta með fyrirvara). Verð frá 2200kr. fer eftir stærð og vinnu
Áletrunarplatti/ steinn: Tilvalið að láta skrifa ritningarvers á stein eða platta og gefa í fermingargjöf.(sjá sýnishorn undir steinar eða trévörur undir vöruflipanum hér vinstramegin á síðunni). Verð frá 1700kr. fer eftir stærð og vinnu
Kærleikssteinn: Eigum úrval af kærleikssteinum sem ylja manni um hjartarætur. (sjá sýnishorn undir steinar undir vöruflipanum hér til vinstri.) Verð frá 990kr. fer eftir stærð og vinnu
Myndasteinn: Skraut-steinn sem hægt er að festa myndir í. (sjá sýnishorn undir steinar undir vöruflipanum hér til vinstri.) Verð aðeins 1700 kr.
Skilaboðasteinn: Skraut-steinn sem hægt er að festa skilaboð í. (sjá sýnishorn undir steinar undir vöruflipanum hér til vinstri.) Verð aðeins 1700 kr.
Blómasteinn: Skrautsteinn með litlum blómavasa fyrir eitt afskorið blóm. Verð aðeins 1800 kr.
Smellið hér til að skoða fleiri myndir/hugmyndir
Takið ykkur endilega tíma í að skoða úrvalið hér á síðunni okkar og hikið ekki við að hafið samband ef þið hafið einhverjar spurningar.
Síminn er 694-2105 (Karen Ósk)
Allt á fullu 2011
Nú erum við komnar á fullt að gera nýjar vörur þar sem flest allt seldist fyrir jólin. Okkur hlakkar til að takast á við ný verkefni á nýja árinu og byrja að hanna og skapa nýja muni sem hafa beðið eftir að komast úr kollinum á okkur og líta dagsins ljós. Hlökkum til að sjá sem flesta sem fyrst kv. Karen Ósk og Valdís Ósk
A.T.H: alltaf opið (ef við erum við) í galleríinu okkar, hringið bara á undan ykkur (sími:5666-035)
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir þau gömlu
Mjóddin 10.des.
Við enduðum svo jólabásana okkar fyrir jólin í þetta skiptið í Mjóddinni. Eftir það fengum við svo þónokkrar heimsóknir í galleríið og var þá oftast verið að kaupa jólagjafir en einnig afmælisgjafir. En jólagjöfin í ár var svo sannalega hús eða risa snjókallar. Ekki amalegt að fá heila fasteign í jólagjöf eða snjókalla sem bráðnar aldrei.
Jólaþorpið í hafnafirði
Við vorum í Jólaþorpinu í Hafnarfirði tvær fyrstu helgarnar í aðventu. Þar var full dagskrá eins og venja er og við áttum mjög góða daga þarna. Öll fjölskyldan hjálpaðist að við að manna básinn og eiga jólastund saman. Við viljum þakka öllum fyrir góaðar viðtökur auk þess sem við viljum þakka þeim sérstaklega sem sjáu um jólaþorpið fyrir gott skipulag og vinsemd.

Opið hús í Galleríinu okkar
Vorum með opið hús í ganga-galleríinu okkar 20.nóv. Það var mjög gaman, margir gerðu sér ferð, kíktu og gerðu jólagjafakaupin. Auk þess sem við spjölluðum og yljuðum okkur á kakó og kaffi.

19.nóv Mjóddin 2010
Vorum í mjóddinni í jólaskapi og skemmtum okkur vel. Þar kom harmonikkuflokkur og spilaði og það var sannkölluð jólastemning á horninu hjá okkur.

Bás 5.nóv 2010
Vorum með bás í Mjóddinni á föstudaginn. Við erum komnar í jólaskap og jólavörunum okkar því farið að fjölga. Við vorum með okkar sívinsælu steinahús auk jólasveina, snjókalla, skraut á jólatréð og fleira.Við þökkum fyrir viðskiptin og góðar viðtökur. Kv. Karen og Valdís
Mjóddin föstudaginn 8.okt
Við vorum með sölubás þann
8.okt . Þar var markaðsstemning eins og venja er í Mjóddinni á föstudögum. Við vorum með okkar vinsælustu listmuni auk þess sem við sýndum forsmekkinn af jólunum þar sem nú er gott að fara að leggja inn pantanir fyrir jólin. kv. Karen og Valdís.

Ljósanótt (Reykjanesbæ) um helgina 3 - 5. sept.
Við vorum á staðnum föstudag og laugardag. Búið var að setja upp þrjú markaðstjöld á hátíðarsvæðinu og var þar alskins handverk til sölu. Veðrið lék ekki við okkur en við létum það nú ekki á okkur fá, enda Kjalnesingar. Við fengum góðar viðtökur og þökkum við öllum fyrir þátttökuna með okkur.

Í túninu heima (Mosfellsbæ) 28-29. ágúst
Það var yndislegt veður á laugardeginum og mikið um að vera út um allan bæ. Við vorum inni í Íþróttahúsinu að Varmá og fengum til okkar marga góða gesti. Á sunnudeginum var veðrið hins vegar ekki eins spennandi og fylltist þá húsið af fólki sem var að hlíða á góða dagskrá á sviðinu og skoða sig um á markaðnum. Við þökkum fyrir viðskiptin og góðar viðtökur.
Kátt í Kjós laugardaginn 17.júlí
Í Kjósinni var mikið um að vera og fjöldinn allur af fólki kom og tók þátt á þessum blíðviðris degi. Markaðsstemningin var mikil og stóru steinakallarnir okkar vaöktu mikla lukku.
Við fengum bás úti og vorum mjög ánægðar með það þar sem sólin lék við okkur allan daginn. Sólskyns-þakkir fyrir góðar viðtökur.

Bestu "Kallar" í heimi
Já við eigum sko bestu "kallana" því á meðan við vorum erlendis tóku eiginmenn okkar að sér að vera með sölubás á tveimur stöðum fyrir okkur. Ekki nóg með það heldur var það um sömu helgina. Frantz fór á Blóm í bæ í Hveragerði og tók þátt í gleðinni þar en Sigþór var hér á okkar heimaslóðum á Kjalarnesdögum. Já við erum sko mikið stoltar og ánægðar með okkar menn
Opnuðum ganga-gallerí Laugardaginn 8.maí
Við erum búnar að útbúa ganga-gallerí hér hjá okkur í Búagrund 13 (116 rvk) og opnuðum við það formlega laugardaginn 8.maí. Gaman var að sjá hversu margir gerðu sér leið að kíkja til okkar og fagna opnununni með okkur. Galleríið verður framvegis opið alla daga milli kl.13 og 18 það er ef við erum heima og eða eftir samkomulagi. Hægt er að skoða myndir frá opnununni undir linknum Galleríð hér til hliðar auk annara upplýsinga um galleríð.

Föstudagurinn 26.mars í Mjóddinni
Við vorum í Mjóddinni 26.mars. Þar vorum við með vörur fyrir fermingar, páska og fleira.
Valentínustardagurinn og Konudagurinn 2010
Við vorum með sölubás í tilefni valentínusar og konu-dagsins í mjóddinni föstudaginn 12.febrúar 2010. Þá vorum við með nýjar vörur sem henta vel sem sætar kærleiksgjafir ásamt e-h af því gamla góða. Þökkum viðskiptin.

Gleðilegt nýtt ár 2010
Já og takk fyrir það gamla. Nú erum við loksins komnar af stað aftur eftir jólafríið. Vonum að þið hafið öll haft það eins gott um jólin og við. Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári.
Jólaþorpið laugarvegi 12.des 2009
Við vorum í jólaþorpinu einn dag fyrir jólin. Þar var mikil stemning og margt fólk. Við skemmtum okkur vel og viljum við þakka fyrir góðar viðtökur.

Mjóddin 4 og 5. nóv 2009
Seldum jólavörur og fleira í mjóddinni þar sem var mikil jólagleði og skemmtileg markaðsstemning. Þökkum viðskiptin.

Mjóddin 27.nóv 2009
Við vorum með sölubás í Mjóddinni á jólavörunum okkar ásamt ýmsu fleira. Þar var mikið um að vera og þökkum við kærlega fyrir viðskiptin og minnum um leið á að við verðum aftur í mjóddinni næstu helgi eins og fram kemur hér fyrir ofan. Sjáumst :)

Nýr meðlimur hefur bæst í fyrirtækið
Þann 23.október 2009 bættist nýr meðlimur í fyrirtækið og er hann strax farinn að vinna með ömmu og mömmu. Eins og sjá má eru mamma og amma alsælar með að fá hjálp frá litla krílinu.

Í túninu heima: Mos 29-30.ágúst 2009 
Við tókum þátt í bæjarhátíð Mosfellsbæar sem kallast: Í túninu heima. Við vorum með sýningar og sölubás á sýningarsvæðinu í íþróttahúsinu að varmá. Markt fólk kom og skoðaði sýningar svæðið og fengum við mjög góðar viðtökur. Við buðum áhugasömum einnig upp á að skrá sig á póstlist sem við munum svo senda upplýsingar á um hvað er um að vera hjá okkur.
Þökkum viðskiptin og góðar viðtökur.
Kátt í Kjós 18.júlí 2009
Margt var um að vera þann 18.júlí í Kjósinni þar sem veðrið lék við okkur allan daginn. Við vorum með bás á markaðnum í félagsheimilinu Dreng . Þar hittum við mörg kunnugleg andlit og stemningin var góð. Við viljum þakka öllum fyrir góðar viðtökur og hlökkum til að eiga við ykkur fleiri viðskipti.
Írskir dagar á Akranesi 4.júlí 2009
Við vorum með sölubás á Írskum dögum á Akranesi 4.júlí. Þar var mikil markaðsstemning og mikill fjöldi fólks. Þökkum góðar viðtökur.

Blóm í bæ helgina 26.-28.júní 2009
Við vorum með á sýningunni blóm í bæ í Hveragerði. Þar vorum við með okkar nýjustu vörur til sölu og sýnis. Húsin okkar voru vinsælust í þetta skiptið enda fasteign á góðuverði miðað við markaðinn í dag, ha, ha.
Að lokum viljum við þakka viðskiptin og góðar viðtökur.
Sölubás í mjóddinni föstud. 3.apríl 2009
Við vorum með sölubás í Mjóddinni þar sem við vorum m.a. með nýjustu vörurnar okkar. Þar á meðal voru sætir páskaungar og munir til fermingagjafa. Það sem var vinsælast hjá okkur í þetta skiptið voru páskaungarnir og steinaenglarnir.
Um leið og við óskum gleðilegra páska þökkum við öllum fyrir góðar viðtökur.

Gleðilegt nýtt ár
Við óskum ykkur öllum farsældar á nýju ári og þökkum viðskiptin á því gamla.
Sölubás í desember
Vorum með jóla-sölubás í mjóddinni föstudaginn 28.nóvember. Fengum góðar viðtökur og salan gekk mjög vel. Þökkum viðskiptin

|